Þorgils

Þorgils Björgvinsson

Þorgils Björgvinsson er rafgítarleikari Sniglabandsins

rafgítarleikari

Þorgils Björgvinsson er sólógítarleikari í Sniglabandinu. Hann gekk til liðs við hljómsveitina árið 1991 en hafði áður leikið með nokkrum vinsælum unglingahljómsveitum á borð við Tríó Jóns Leifs og Ný dönsk. 

Þorgils er afar fjölhæfur gítarleikari og er vel heima í flestum tegundum tónlistar. Hann er einstaklega fundvís á hljómsetningar og hefur verið iðinn við að gera landslýð léttara að finna hljóma við ótölulegan fjölda vinsælla sönglaga í gegnum vefinn gitargrip.is. 

Þorgils stundar líka gítarkennslu og þykir einstaklega skilningsríkur og þolinmóður kennari. Hann býr í Kópavogi og er stoltur af sínum bæ.