Um okkur
Sniglabandið er rokkhljómsveit sem var stofnuð í Reykjavík árið 1985. Hljómsveitin er þekkt fyrir óvæntar uppákomur og ótrúlegan fjölbreytileik í efnisvali sínu.
Sniglabandið var stofnað í Reykjavík árið 1985. Ári áður höfðu Bifhjólasamtök lýðveldisins, Sniglar, verið stofnuð og þótti sýnt að það þyrfti nauðsynlega að stofna band í kringum það batterí. Þarna í upphafi vorum við náttúrulega skítblankir, en vorum stórhuga og tókum þá ákvörðum að kaupa og reka okkar eigið hljóðkerfi og hljómsveitarbíl. Það var ekki séns að við ættum fyrir þessu en þar komu Bifhjólasamtök lýðveldisins til hjálpar og veittu okkur lán til að kaupa hljóðkerfið. Okkur þóttu vextirnir háir, en það varð bara að hafa það. Við keyptum okkur átta rása Roland-mixer með innbyggðum magnara sem skilaði 150 wöttum og tvo Acoustic hátalara, einhverja hljóðnema og þar með var bandið orðið ballfært. 150 wött eru kannski ekki mikið, en þau voru nóg til þess að á balli númer tvö, sem var áramótadansleikur á Þórshöfn á Langanesi, kom áhöfnin af Halastjörnunni labbandi yfir dansgólfið með ógnandi hægð einmitt þegar við vorum að fara að telja í Hjálpum þeim. Þeir sögðu þessi dramatísku orð með þeim hætti að okkur mótorhjólatöffurunum fannst ráðlegast að hlýða: „Þið ættuð að lækka, strákar.“
Við vorum mikið fyrir norðan fyrstu árin. Á þeim árum þótti ekki tiltökumál að keyra í 5-6 tíma til að komast á gott djamm. Þar var líka fullt af sætum stelpum og mikil gleði. Þar var á þessum árum opnaður veitinga- og skemmtistaður sem nefndur var Uppinn. Þar spiluðum við gjarnan á virkum dögum, en það vildi brenna við að þóknun hljómsveitarinnar dygði ekki fyrir reikningnum á barnum svo við urðum stundum að spila kvöldið eftir líka og jafnvel þarnæsta. En það var nú ekki slæmt. Þar voru líka bestu flatbökur landsins og uppáhaldskokkurinn okkar, Gunni Palli, sem nú gerir það gott í Danaveldi.
Tónlist með orku, merkingu og tengingu
Sniglabandið er til til að skapa tónlist sem er kraftmikil, heiðarleg og tilfinningalega tengd. Markmið sveitarinnar er að sameina orku nútímarokks við merkingarbæra lagasmíð, kvikmyndalegt andrúmsloft og eftirminnilega tónleika. Hver útgáfa, hverjir tónleikar og hvert sjónrænt verkefni mótast af sama markmiði: að skapa tónlist sem hjálpar fólki að finna sig séð, innblásið og tengt.
Kynntu þér meðlimina
Sniglabandið er skipað sex tónlistarmönnum; Björgvini Ploder trommuleikara og söngvara, Einari Rúnarssyni orgelleikara, Friðþjófi Ísfeld Sigurðssyni bassaleikara, Pálma J. Sigurhjartarsyni píanóleikara, Skúla Gautasyni söngvara og kassagítarleikara og síðast en ekki síst Þorgils Björgvinssyni rafgítarleikara.
Verðlaun og afrek
Sniglabandið hefur frá upphafi haft nokkra sérstöðu meðal íslenskra hljómsveita. Sveitin hefur verið óhrædd við að feta ótroðnar slóðir og taka áhættu af ýmsu tagi.
Hátíðin Eyrarrokk var haldin á Vitanum á Akureyri helgina 2.-3. október 2026. Sniglabandið lék þar seinna kvöldið og náði…
Sniglabandið hefur opnað nýjan vef. Þar má finna sögu hljómsveitarinnar, útgáfusögu, myndbönd sveitarinnar og allskyns varning…
Sniglabandið lék á Hammondhátíð á Djúpavogi í lok apríl 2026. Hljómsveitin var tvöföld í roðinu; fyrir hlé lék hún með…