Verðlaun og áfangar
Áfangar Sniglabandsins sýna hvernig hljómsveitin óx úr upprennandi rokkverkefni í Reykjavík yfir í virta nútímarokksveit.
Eftir að fyrsta hljómplata Sniglabandsins kom út, veittu Bifhjólasamtök lýðveldisins hljómsveitinni viðurkenningu í formi risastórrar álplötu. Verðlaunaafhendingin vakti nokkra athygli fjölmiðla, en sumir áttu erfitt með að átta sig á því hver væri að gefa hverjum hvað og fyrir hvað.
Hljómsveitin var valin Bjartasta vonin hjá DV eftir útgáfu plötunnar.
1986 — Bjartasta vonin
Sniglabandið fékk viðurkenningu sem Bjartasta vonin 1986 eftir útgáfu fyrstu plötu sinnar. Þetta staðfesti stöðu sveitarinnar sem eins af efnilegustu nýju nöfnunum í íslensku nútímarokki. Verðlaunin gáfu hljómsveitinni mikilvægan meðbyr á fyrstu árum hennar og hjálpuðu til við að kynna Sniglabandið fyrir stærri áhorfendahópi utan tónleikastaða í Reykjavík.
1986 — Sniglabandið fær stálplötu
Velgengni Fjöllin fjalla í hauga. Bifhjólasamtök lýðveldisins létu framleiða stóra og mikla stálplötu sem var afhent Sniglabandinu sem viðurkenning fyrir góðan árangur fyrstu plötunnar og hvatning til að halda áfram á sömu braut. Viðburðurinn vakti talsverða athygli þótt sumir hefðu klórað sér í höfðinu og spurt hverjir hefðu veitt hverjum hvað og fyrir hvað.
1987— Fyrsta myndbandið
Sniglabandið gerði leikið myndband við lagið Gunnakaffi. Myndbandið naut töluverðra vinsælda og lagið fór í þriðja sæti vinsældalistans. Myndbandið var tekið upp í Hressingarskálanum í Austurstræti.
1989 — Sniglabandið fer til Sovétríkjanna
Árið 1989 fékk Sniglabandið vegabréfsáritun fyrir fimm stór mótorhjól og gamlan gulan póstvagn til að fara í tónleikaferð til Sovétríkjanna, en þau höfðu fram til þessa verið harðlokuð fyrir slíkri menningu. Þetta reyndist verða í eina skiptið sem slík vegabréfsáritun varð veitt, því skömmu síðar liðaðist þetta heimsveldi í sundur.
Um þetta má lesa nánar í bókinni Sovétför Sniglabandsins, sem fæst í vefverslun hér á síðunni.
1993 — Samstarf við Blóðmör
Sniglabandið náði samningum við unglingatilraunadauðarokksveitina Blóðmör um samstarf á sviði sviðslista og tónlistarflutnings. Blóðmör náði einstökum efnistökum í listsköpun sinni og hélt áhorfendum hugföngnum.
2024 — SPRNKLR gengur til samstarfs við Sniglabandið
Tónlistarmaðurinn og rapparinn SPRNKLR hefur hafið samstarf við Sniglabandið og gefa þessi tvö stórveldi sameiginlega út lagið Sótt honum. SPRNKLR er þekktastur fyrir ótrúlegt vald sitt á íslenskri tungu. Hefur honum margsinnis tekist að knésetja tunguna, teygja hana og toga eða jafnvel slíta hana í tvennt.