Útgáfuskrá
Útgáfuskrá Sniglabandsins nær yfir fjóra áratugi. Útgáfurnar sýna þróun sveitarinnar frá upprennandi íslenskri rokksveit yfir í rótgróna og virta hljómsveit sem hefur tekist á við ótrúlegustu áskoranir, en er ávallt opin fyrir óvæntum uppákomum. Hver útgáfa táknar sérstakan kafla í tónrænu ferðalagi sveitarinnar.
Útgáfuskrá Sniglabandsins segir sögu óvanalegrar hljómsveitar sem fer sínar eigin leiðir, er stöðugt að þróast og reyna eitthvað nýtt, án þess þó að missa tengslin við sína grunnsjálfsmynd. Frá stofnun sveitarinnar í Reykjavík árið 1985 mynda upptökur sveitarinnar ferðalag sem einkennist af sköpunargleði, seiglu og listrænum vexti.
Sagan hófst árið 1985 með útgáfu Fjöllin falla í hauga, tveggja laga sem kynnti hlustendum grunninn að hljómi Sniglabandsins með . Með ferskri söngrödd, ágengum gítarleik og miskunnarlausum trommuleik mótaði EP-platan þá tónlistarlegu sjálfsmynd sem varð einkennandi fyrir framtíðarútgáfur sveitarinnar fram yfir live-plötuna Getum við ekki látið eins og hálfvitar. Þessi orka og spilagleði hjálpuðu Sniglabandinu að byggja upp sinn fyrsta trygga áheyrendahóp.
Ári síðar gaf hljómsveitin út Áfram veginn með fjórum hljóðverslögum og ári eftir það kom Til hvers þarf maður konur, þar sem kvað við nokkuð nýjan tón enda Baldvin tekinn við gítarnum. Með henni náði hljómsveitin til nýrra hlustenda og víkkaði út skapandi sjóndeildarhring sinn.
Árið 1989 fór hljómsveitin í fræga för til Sovétríkjanna og dvaldi þar í mánuð, spilaði á 18 tónleikum og tókst sú ferð með eindæmum vel. Eftir heimkomuna gekk mönnum misvel að sætta sig við að verða aftur óbreyttir popparar á íslenska poppakrinum og urðu nú nokkrar mannabreytingar.
Árið 1992 var komin sú liðskipan í hljómsveitina sem heyra má enn í dag og hefur náð hve mestum vinsældum. Hljómsveitin var með vikulega útvarpsþætti, fyrst á Aðalstöðinni en síðan á Rás2 og nutu þeir gríðarlegra vinsælda. Þessir þættir voru á dagskrá með hléum til 2015. Hljómsveitin samdi jafnan nýtt lag fyrir hvern þátt og rötuðu mörg þeirra á plötur og sum slógu rækilega í gegn.
Spurt og svarað
Fjöllin falla í hauga EP-platan kom út árið 1985
Þetta stóra svarta og Vestur eru vinsælastu hljóðversplötur sveitarinnar til þessa. Tónleikaplatan Getumviðekkilátiðeinsoghálfvitar? naut líka mikilla vinsælda, en hún var tekin upp á Gauki á Stöng, sem mátti heita heimavöllur hljómsveitarinnar um tíma.
Núverandi útgáfuskrá inniheldur 200 lög, flest frumsamin, á 27 útgáfum.
Jólahjól er það lag Sniglabandsins sem hefur hlotið langmesta spilun, en í hugum margra er það frekar tengt Stefáni Hilmarssyni en Sniglabandinu. Það lag sem af mörgum er talið einkennislag Sniglabandsins er Í góðu skapi, sem fjallar um Sovétferð hljómsveitarinnar.
Fjörutíu ára ferðalag sem ekki sér fyrir endann á
Sniglabandið fagnaði fjörutíu ára starfsafmæli sínu með stórtónleikum í Hörpu ásamt Lögreglukórnum. Það varð fljótlega ljóst að Sniglabandið yrði langlíf hljómsveit þó hún hafi vissulega þurft að takast á við ýmsar áskoranir í gegnum tíðina. Það mynduðust fljótt sterk vináttubönd milli félaganna í hljómsveitinni sem slitna ekki svo glatt. Hljómsveitin hefur vissulega tekið stuttar pásur, en staðreyndin er hinsvegar sú að þegar lítið hefur borið á sveitinni hefur hún verið hvað uppteknust við að spila á árshátíðum og öðrum skemmtunum, og því ekki haft tíma til að sinna skapandi vinnu og almannatengslum
Hér er myndbandsupptaka sem ónefndur áhorfandi tók á afmælistónleikum Sniglabandsins og Lögreglukórsins, sem fagnaði 90 ára afmæli sínu í sömu andrá.