Allir litir heimsins
Allir litir heimsins er lag sem Sniglabandið gaf út 2024.
Allir litir heimsins er lag sem Sniglabandið gaf út árið 2024. Lagið var tekið upp á Laugarbakka í Miðfirði og upptökumaður var Sigurvald Ívar Helgason. Lagið er eftir Pálma Sigurhjartarson en textinn eftir Friðþjóf Ísfeld Sigurðsson.
Allir litir heimsins fjallar um mann sem að fer í langt ferðalag inn í sér. Eftir að hafa eytt ævinni í að ferðast um höf og fjöll og séð álfa og tröll í leit að sjálfinu, ákveður hann að taka hatt sinn og mal og lítinn háf, og arka af stað í átt að sjálfum sér, þar sem að tíminn líður áfram afturábak.
Lagið kom út árið 2024 sem single eða eingill.
Umslagið, sem skartar öllum tólf litum heimsins, er hugarsmíð Sváfnis Sigurðarsonar
Í laginu er leikið á indverska strengjahljóðfærið sítar, en það er í fyrsta sinn í sögu hljómsveitarinnar. Það er sítarsnillingurinn Þorgils Björgvinsson sem framkallar töfratóna sítarsins. Til að styrkja hinn austræna heim er einnig leikið á Tabla-trommur í laginu, en það er hinn fingralangi Skúli Gautason sem fer næmum fingurgómum um húðirnar.
Nei. Lagið hefur aldrei verið flutt á tónleikum. Til þess er það of flókið.