Einar Rúnarsson
Einar Rúnarsson er orgelleikari Sniglabandsins.
Hammondleikari
Einar Rúnarsson er orgelleikari Sniglabandsins og leikur jafnan á Hammond-orgel. Einar er húmoristi af guðs náð og er einn fyndnasti maður Íslands. Hann er líka frábær tónlistarmaður og leika flestar tegundir tónlistar í höndum hans.
Á menntaskólaárunum lék hann í hljómsveitinni Reðr, hann leikur með Blúsmönnum Andreu, BP og þegiðu Ingibjörg, Ebenezer Quart, Járnkarlinum og Skafi.
Hann skipar ásamt Þorgils unglingatilraunadauðarokkshljómsveitina Blóðmör.
Einar og Björgvin brugðu sér í gervi Strumpanna hér um árið og sungu inn fjórar plötur sem urðu hver annarri vinsælli.